Færsluflokkur: Bloggar
Þriðjudagur, 30. september 2008
Haust - stemmningar
SEPTEMBER:
Albúm: September 2008
KUUSANKOSKI:
ALBÚM: Kuusankoski haustið 2008
Kuusankoski 25.9.2008 - Ég tók meðfylgjandi myndir af fallegri hauststemmningu í pappírsiðnaðarborginni Kuusankoski í dag, en ég kenni einmitt myndlist í finnskum grunnskóla í borginni. Lífæð borgarinnar er Kymijoki, eða Kymi-áin, en pappírsverksmiðja borgarinnar er við ánna. - Kv. BB
HAUST VIĐ SAIMAA VATNIĐ:
ALBÚM: Haust við Saimaa vatnið 2008
Ágúst:
Albúm: Ágúst 2008
SEPTEMBER - STEMMNING:
Albúm: September 2008
HELSINKI:
Ég hitti íslenskan ferðahóp í Helsinki sl. föstudagskvöld 5.9. sem var á ferðinni hér undir leiðsögn Kristjáns M. Baldurssonar. Við borðuðum saman í höfuðborginni og gengum síðan að finnska þinghúsinu, en svo skemmtilega vildi til að mikill mannfjöldi var saman kominn á tröppum þinghússins og í næsta nágrenni, en tilefnið var mikil flugeldasýning, þar sem reynt var að slá Finnlandsmetið í slíkum flugeldaskotum. Jú það voru víst um 120.000 manns að horfa á þetta, svo það var ekki að undra að íslenski ferðahópurinn yrði gáttaður á ósköpunum, en flestir í hópnum eru eftirlaunafólk. Sjá myndirnar. Hópurinn hélt síðan til Lapplands í Finnlandi og í siglingu í góðu veðri á Inari vatninu, en síðan var haldið til Noregs til Hammerfest, og í dag kemur hópurinn aftur til Helsinki, og flýgur líklega til Íslands á laugardaginn. Þess má geta að við Kristján þekkjumst frá því sumarið 1979 er hann var leiðsögumaður með tvo franska ferðahópa, og ég bílstjórinn, Sjá eftirfarandi frásögn: "Sumarið 1979 ók ég með tvo franska ferðahópa hringinn í kringum Ísland. Þetta voru mjög góðar ferðir, og frönsku ferðamennirnir stórskemmtilegi, og kunnu svo sannarlega að njóta lífsins. En það kom t.d. vel í ljós í ferðinni með fyrri hópnum, er slegið var upp hlöðuballi á franska vísu með allskonar skemmtilegum leikjum, í hlöðunni hjá bóndanum á fyrsta bænum í Vatnsdalnum, en þar höfðu við fengið inni eina nóttina, því úti var úrhellisrigning og ekki hægt að slá upp tjaldbúðum". - BB -
Albúm: Helsinki
KOTKA-LANGINKOSKI:
28.9.2008- Kymijoki, (Kymi-áin) sem er 204 km löng rennur straumhörð í gegnum hafnarborgina Kotka í Langinkoski, og loks út í Finnskaflóa. (En einmitt sama áin rennur í gegnum pappírsiðnaðarborgina Kuusankoski). Kymi-áin er straumhörð í Langinkoski, og einmitt á þeim stað er góð laxveiði í ánni. Það var engin tilviljun að Aleksander III Rússlandskeisari byggði sér veglegt veiðihús fyrir sig og fjölskylduna sína í Langinkoski. Keisarafjölskyldan naut þess að koma þangað á sumrin og njóta umhverfisins í mjög fallegu umhverfi, og stunda laxveiðar. Ég tók nokkrar ljósmyndir í dag á þessum sögufræga stað i Langinkoski, og eins og sjá má á nokkrum myndunum, þá stunda Finnar útiveru og laxaveiðar í Langinkoski. Kv.BB
ALBÚM: Kotka-Langinkoski
JANINA:

Hún Janina, sem er Guðdóttir okkar Pirjo átti 22 ára afmæli nýlega, en af því tilefni buðum við henni út að borða í borginni Hamina hér í Finnlandi, en hún stundar einmitt framhaldsnám rétt hjá borginni.
Janina var tíður gestur hjá okkur Pirjo í sumarbústaðnum við Saimaa vatnið , þegar hún var yngri. Sjá meðfylgjandi myndir.
___________________________________________________
ISLAND - ISLANTI 27.10.2008
Haust-stemmning í Prag - Restaurant Reykjavík - Praha - er í miðborg Prag.
Myndir frá Prag: http://images.google.fi/images?hl=fi&q=Prague&um=1&ie=UTF-8&resnum=1&sa=N&tab=li

Ísland er landið
ÍSLAND: http://images.google.fi/images?um=1&hl=fi&q=Iceland&btnG=Etsi+kuvia ÍSLENDINGAR: http://images.google.fi/images?um=1&hl=fi&q=%C3%8Dslendingar Icelanders: http://images.google.fi/images?um=1&hl=fi&q=Icelanders&&sa=N&start=140&ndspJón Baldvin fyrrum utanríkisráðherra og sendiherra Íslands í Finnlandi
”Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir Ísland í huga þér, hvar sem þú ferð”.
Ísland er land þitt:http://www.snerpa.is/textar/nr/79.phtml Mótmæli við Ráðherrabústaðinn: Sjá frétt sjónvarpsins, og m.a. Jón Baldvin fyrrum utanríkisráðherra og sendiherra Íslands í Finnlandi halda ræðu á fundinum. - En ljósmyndin er tekin af Jóni Baldvin í Kouvola í Finnlandi 2.12.2004 -Sjá fréttina: http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4398090/5
Nóvember:
9.11.2008
Nóvember - stemmning:
16.11.2008
Þessar myndir tók ég af nóvember-stemmningunni við strönd Saimaa vatnsins hér í Finnlandi um helgina, eða á svipuðu tíma og mótmælin áttu sér stað á Austurvelli í Reykjavík. En nóvember-stemmningin í höfuðborg Íslands var af öðrum toga. Sbr. eftirfarandi frétt Mbl.:
Milli sjö og átta þúsund manns tóku þátt í mótmælum á útifundi við Austurvöll 15.11.Þátttakendur sem MBL ræddi við í bænum voru allir sammála um að reiðin væri að stigmagnast í þjóðfélaginu. Einn ræðumanna, Viðar Þorsteinsson heimspekingur sagði í ræðu sinni að gerspillt valdaklíka auðmanna og flokksforingja stjórnaði í raun landinu. Hér væri í raun alls ekkert lýðræði en ráðherrar og hagsmunahópar skrifuðu lögin sem síðan væri rennt í gegnum alþingi á færibandi. Glæpamenn fengju náðun hjá vinum sínum og færu þá inn á þing. Vinir, synir og ættingjar væru ráðnir í ábyrgðarstöður og stjórnmálamenn töluðu við almenning eins og heimtufrekan krakka þegar þessi óhæfuverk væru gagnrýnd. Það er skiljanlegt að reiðin sé að stigmagnast í hinu íslenska þjóðfélagi í kjölfar efnahags hrunsins í landinu, sem enginn telur sig bera ábyrgð á. Athyglisverð eru orð Viðar Þorsteinssona heimsspekings í þessu sambandi. Hið alvarlega efnahagsástand á Íslandi er mikið í fréttum hér í Finnlandi af skiljanlegum ástæðum. Ég vona auðvitað og vil trúa því að Ísland nái sér upp úr þessum djúpa öldudal með tíð og tíma, á sama hátt og Finnum tókst að rífa sig upp af krafti, út úr kreppunni sem hér ríkti fyrir tæpum 20 árum síðan. - Kv. BB
__________________________________________________________________________
P.S. 19.11.2008 - VETRARKOMA Í SUĐUR-FINNLANDI:
Yngstu skólabörnin í pappírsiðnaðarborginni Kuusankoski kunnu vel að meta fyrsta snjó vetrarins sem féll hér í Suður - Finnlandi snemma í morgun, eins og sjá má á myndunum. Kv. BB
______________________________________________________________
Bloggar | Breytt 19.11.2008 kl. 18:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 12. ágúst 2008
Í Furuskógarlandinu
Hann Rúnar bróðir minn kom hingað til Finnlands frá Svíþjóð þar sem hann hafdi dvalið um tíma, ásamt Elínu konunni sinni og dóttur þeirra henni Söndru Rún. Þau sigldum með Silja Line frá Stokkhólmi til Helsinki 8.8. sl og dvöldu hjá okkur í þrjá daga. Í dag flugu þau aftur heim til Íslands frá Stokkhólmi. Þetta var stórskemmtilegur tími sem við áttum saman hér í Finnlandi og margt var brallað saman. Sjá myndirnar í myndalbúminu.
Þess má geta að hún Sandra Rún sem nú er 23 ára gömul kom fyrst til okkar Pirjo, þegar hún var aðeins 11 ára gömul, ásamt yngri systur sinni henni Lenu Björg, og komu þær einar til okkar hingað til Finnlands frá Íslandi, alveg á sama hátt og hún Ástrós gerði nýlega.
Sjá myndaalbúm: Furuskógarlandið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 1. ágúst 2008
Ástrós í Finnlandi
Ástrós í Finnlandi 23.7.-30.7.2008. Við Pirjo brölluðum margt og skemmtilegt með henni Ástrós þegar hún var hér hjá okkur. En myndirnar af Finnlandsferðinni hennar, sem ég setti inn á bloggið þegar hún var hér tala skýru máli. En nú er ég svona smátt og smátt að bæta við texta um Finnlandsferðina hennar. Við fórum með fyrst henni til borgainnar Porvoo - Borgå, og einnig til Helsinki í dýragarðinn sem staðsettur er á eyju við borgina. Við fórum saman í öll glannataekin Tívolí skemmtigarðinum hér í Kouvola. Og síðast en ekki síst 3 daga ferð í sumarbústaðinn okkar við strönd Saimaa-vatnsins. Ástrós skemmti sér konunglega er hún tók fjölmarga sundspretti í 24 C heitu Saimaa vatninu, og hefði hún gjarnan viljað vera þar fjölmarga daga til viðbótar.
Pabbi hennar Ástrósar, hann Hilmar Björgvinsson, sem er yngsti bróðir minn, bloggaði um ferð dóttur sinnar:
Ástrós í Finnlandi Í Finnlandi er gott að vera Finnlandsfarinn á leið heim
og afi hennar bloggadi líka um ferð hennar: Ástrós í Finnlandi
P.S. Í bílnum á milli staða í Finnlandi spiluðum við lög af íslensku plötunni 100 bestu lög lýðveldisins. Það eru mörg góð lög á plötunni, og tókum við Ástrós undir í söngnum með mörgum lögunum. Ástrós er í skólakórnum á Selfossi, og hefur áhuga á allskonar tónlist, t.d. kom í ljós kom að hún hafði séð kvikmyndina Mamma Mia, með Abba lögunum, og hældi hún myndinni, sem varð til þess að við Pirjo horfðum á myndina í kvikmyndahúsi í miðborg Helsinki sl. fimmtudagskvöl, og skemmtum við okkur konunglega. Sjá: Mamma Mia! The Movie - Honey Honey video): http://au.youtube.com/watch?v=lysKRN-cdg0 Lay All Your Love on Me clip-[MAMMA MIA! THE MOVIE: ] : http://au.youtube.com/watch?v=QIBG0NHKVs0&feature=related mma Mia ! :the exclusive clip from the film's website http://au.youtube.com/watch?v=AsCqBBPDLA0&feature=related Mamma Mia! The Movie - The Winner Takes It All (video): http://au.youtube.com/watch?v=bCmOWYbmr4k&feature=related
Dröfn í heimsreisu ............
Ástrós á systir sem heitir Dröfn, og er hún nú í 6 mánaða heimsreisu með vinkonu sinni.Sjá myndina af henni við stærsta blóm heims. Pabbi hennar bloggaði einnig um Dröfn: Stærsta blóm heims Sjá einnig: Eldfjallið Bromo á austu Jövu veldur blindu og köfnun Sjá einnig eftirfarandi blogg um Ástrós: Ástrós í 3. sæti1.8.2008: Ástrós er 11 ára í dag, en við Pirjo héldum upp á afmælið með henni hér í Finnlandi sl. þriðjudag, eins og sjá má á þessari mynd af henni.
Sjá myndir í albúmi: Ástrós í Finnlandi 23.7. - 30.7.2008: Ástrós
Bloggar | Breytt 11.10.2008 kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 31. mars 2008
Ungir listamenn......
16.8.2007
LISTASTRAUMAR
Í tilefni af mikilli grósku í listalífinu í Finnlandi og á Íslandi, birti ég hér með eftirfarandi ljósmyndir á bloggsíðunni, sem ég tók í Hlíðunum í Reykjavík í síðust viku af kornungum listamanni framtíðarinnar: (Myndirnar er hægt að stækka upp með því að klikka á þær með vinstri músarhnappnum).
Arngrímur Guðmundsson er 9 ára gamall og bregður hér á leik fyrir framan málverk eftir pabba sinn. En Arngrímur er einnig listrænn þrátt fyrir ungan aldur, sem kom mjög vel í ljós er hann sýndi okkur Pirjo fjölmargar hressilegar myndir sem hann hefur gert. - BB -
________________________________________
Vorið 2007
ÍSLENSK BÖRN SÝNA Í FINNLANDI:
Austurbær sýndi barnaleikritið "Dragon Forest", á alþjóðlegu barnaleikritahátíðinni í Kuusankoski í Finnlandi . Um 20 íslensk börn sýndu hið stórskemmtilega leikrit á tveimur sýningum á hátíðinni. Börnin sýndu með miklum tilþrifum og tókst sýningin mjög vel. Sjá nokkrar myndir sem ég tók á sýningunni af hinum frábæru ungu leikurum.
Það var að frumkvæði íslenska sendiráðsins í Helsinki að ég fór sem fulltrúi sendiráðsins til að horfa á leikritið í Kuusankoski, þar sem ég starfa sem myndlistarkennari.
Í för með Íslensku börnunum í Finnlandsferðinni voru m.a. nokkra mömmur íslensku barnanna, sem ég spjallið við í lok sýningarinnar. Einnig spjallaði ég við leikstjórann Agnar Jón, sem sagði mér að í Kuusankoski hefði verið tekið frábærlega vel á móti íslenska hópnum, og Finnar verið mjög vinsamlegir. Og ekki spillti fyrir frábært veður, sól og 20 C hiti. - BB -
VORIĐ 2008:
MARS 2008: STEINUNN OG NEIL Í FINNLANDI
Finnlandsfara frá Reykjavík og Cork, Íslandi og Írlandi.............
Steinunn bróðurdóttir mín og og írskur kærasti hennar hennar hann Neil eru nú í Finnlandi. Sjá myndirnar sem ég tók af þeim. Mynda-albúm: Steinunn og Neil í FinnlandiSteinunn og Neil eru flott á þessu í Finnlandi, og í upphafi ferðarinnar dvöldu þau á 5 stjörnu hóteli í Helsinki, þau voru dugleg að heimsækja kaffihúsin og menningarhúsin í höfuðborginni. Sjá meðfylgjandi myndir af uppáhaldskaffihúsinu þeirra Kappeli í Helsinki. http://www.kappeli.fi/ Í lok Finnlandsferðarinnar verða þau aftur á fína hótelinu: HOTEL KÄMP: http://www.hotelkamp.fi/en/Index/ Finnland hefur heillað þau og ekki síst Helsinki, sjá myndir frá höfuðborginni:
Helsinki: http://images.google.fi/images?hl=fi&q=Helsinki&um=1&ie=UTF-8&sa=N&tab=wi
Steinunn og Neil hafa búið og stundað nám í Cork á Írland. Sjá myndir frá Cork:
Cork: http://images.google.fi/images?hl=fi&q=Cork&um=1&ie=UTF-8&sa=N&tab=wi
Steinunn er frá Reykjavík. Sjá myndir þaðan:
Reykjavík: http://images.google.fi/images?um=1&hl=fi&q=Reykjav%C3%ADk&btnG=Etsi+kuvia
Í byrjun vikunnar sigla Steinunn og Neil til Tallinn:
Tallinn: http://images.google.fi/images?um=1&hl=fi&q=Tallin&btnG=Etsi+kuvia
Sjá BB myndaalbúm: TALLINN
Bloggar | Breytt 5.10.2008 kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 3. febrúar 2008
Miðsumarið – Juhannus 20. - 22.6. 2008
Bloggar | Breytt 26.6.2008 kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 25. desember 2007
Nú er sumar.... Nyt on kesä....
14.6.2008
Það er alveg ljóst að nú er sumar, og sólin skín glatt hér í Finnlandi, og á þessum góða degi 14. júní tók ég meðfylgjandi ljósmyndir. En eins og sjá má er gróðurinn í mikilli grósku, og blómin tala auðvitað sínu máli á svona fögrum sumradegi. - Finnska miðsumarshátíðin, "Juhannus", er um næstu helgi, sem er mesta ferðamannahelgin í Finnlandi, og höfuðborgin Helsinki tæmist nánast af fólki og flestir íbúar landsins streyma í sumarbústaðina sem eru um ½ milljón að tölu, við strendur finnsku vatnanna. En Finnar kunna mjög vel að meta útveru í hinu fagra umhverfi við finnsku vötnin. Þess má geta að brúðkaup eru mjög vinsæl í Finnlandi á sumrin og sértaklega um miðsumarið. Kveðja, Björgvin B.
Myndirnar er hægt að stækka upp með því að tvíklikka á þær með vinstri músarhnappnum, og klikka síðan aftur á stækkuðu myndirnar, sem verða þá enn stærri og skýrari.
Bloggar | Breytt 17.6.2008 kl. 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)